Forsíða arrow Námskeið
Námskeið
Námskeið PDF Prenta Tölvupóstur


Námskeið Vor 2009

 

Byrjendanámskeið.  

Þrjú skipti - 14. 21. og 28. janúar

kr. 9800,-

  • 3 x 3 klst.
  • Gerð eru þrjú lítil stykki með mismunandi aðferðum.
  • Kennd er undirstaða í bútasaum ss. notkun áhalda, meðferð efna, álíming, frágangur og aðferðin beint á bak og vatt.
  • Efni og kennslugögn fylgja.

Bogasaumur - NÝTT

18. mars

kr. 3900 ,-

  • 4 klst.
  • Gerðar eru blokkir með bogasaum
  • Kennt er að nota skapalón til að sníða í bogasaum. Sýnt er hvernig nýta má efnið best.  Kennd aðferð við að sauma bogasaum á einfaldann hátt.
  • Ath. skapalón og efni fylgja ekki þar sem hægt er að velja það sem hver vill.

Gamlar blokkir glæddar nýju lífi  - NÝTT

18. febrúar 

kr. 5900 ,-

  • 4 klst.
  • Gerðar eru tvær blokkir
  • Kenndar eru nýjar aðferðir við gerð á gömlum hefðbundnum blokkum sem lengst af hafa verið gerðar í höndum.
  • Efni og kennslugögn fylgja.


Crazy - Quilt - NÝTT

3. mars

kr. 5900 ,-

  • 3 klst.
  • Gert er púðaborð
  • Gefin er innsýn inn í hinar ýmsu aðferðir við Crazy-Quilt. 
  • Efni og kennslugögn fylgja.

Vattstunga í vél (vélkviltering) - NÝTT

30. mars

kr. 3900,-

  • 3 klst.
  • Gerðar eru nokkrar prufur
  • Kynning og kennsla á hinum ýmsu aukahlutum og hjálpartækjum sem til eru til að auðvelda vattstungu í vél.   Kenndar og sýndar margar aðferðir til að létta þessa vinnu.
  • Efni í prufur og kennslugögn fylgja.

Vináttuflétta - NÝTT

23. mars

kr. 3000 ,-

  • 3 klst.
  • Gerðar eru vináttufléttur
  • Kennd er aðferðin við að gera vináttufléttuna frægu.  Þátttakendur læra að skera í fléttuna og læra að nýta efnið sem best.  Kennt verður að setja saman og hvernig fléttan nýtist í stærri verkefni.
  • Kennslugögn fylgja.

Beint á bak og vatt.

19.janúar

25. febrúar

kr. 7200 ,-

  • 4 klst.
  • Gerður er löber.
  • Kennd er aðferðin beint á bak og vatt og notkun áhalda því tengdu.
  • Efni og kennslugögn fylgja.

Array


Pappírssaumur "paper - piece"

29. janúar

kr. 4900,-

  • 4 klst.
  • Gerð er lítil veggmynd
  • Kennt er að sauma pappírssaum og sýnd notkun á áhöldum því tengdu.
  • Efni og kennslugögn fylgja.

Applikering

26. janúar

23. febrúar

kr. 4900,-

  • 4 klst.
  • Gerð er veggmynd
  • Kennt er að applikera með flíselíni.  Kennt að nota áhöld og sýndar aðferðir til að auðvelda applikeringu.
  • Efni og kennslugögn fylgja.

Þrívíddarblóm og Jo -jo.

4. febrúar

12. mars

kr. 4900,-

  • 4 klst.
  • Gerð eru ýmis þrívíddarblóm
  • kenndar eru nokkrar aðferðir við að gera þrívíddarblóm og stilka.  Einnig kennt að gera jo-jo púff og kennt að nota ýmis áhöld.
  • Efni og kennslugögn fylgja.

Pennasaumur "Punch - needle"

5. febrúar

Námskeið frítt en ætlast er til að þátttakendur kaupi pakkningu.

  • 1 -2 klst.
  • Byrjað er á lítilli pennasaumsmynd
  • Kennd er aðferðin við pennasaum ásamt frágangi á slíkum verkum.
  • Þátttakendur kaupa pakkningu til að gera mynd á staðnum
  • Þátttakendur verða að eiga pennasaumsnál (hún fæst einnig á staðnum)


Gamlar syndir

Ódags. Skráning stendur yfir 

kr. 3000,-

  • ca. 3 - 4 klst. getur einni verið laugardagur eða sunnudagur.
  • Aðstoðað er við að halda áfram eða ljúka ýmsum verkefnum sem strandað hafa einhversstaðar.

Stain - glass aðferðin  - (steindar myndir)

16. febrúar

kr. 5900,-

  • ca. 3 - 4 klst.
  • Gerð er lítil veggmynd.
  • Kennd er aðferðin við að gera steindar myndir.
  • Efni og kennslugögn fylgja.
Array

Við eigum eftir að bæta hér inn fleiri námskeiðum.
Ef þið finnið ekki hér það sem þið leituðuð að endilega látið okkur vita
því hugmyndir eru alltaf vel þegnar.
Við erum svo líka tilbúnar að koma til ykkar með námskeið ef óskað er, allt eftir samkomulagi.
Upplýsingar og skráning eru hjá Önnu á netföngin
Þetta netfang er varið fyrir ruslpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það eða Þetta netfang er varið fyrir ruslpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
 

Karfan þín

Sýna körfu
2 Vörur,
8.322,- kr.

Vöruleit

Vefsíðugerð: Vefsíður.is